ALHLIÐA LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
Jónatansson & Co veitir alhliða lögmannsþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.
ÁRATUGA REYNSLA
Starf Jónatansson & Co byggir á áratuga reynslu lögmanna. Okkar markmið er ávallt að veita góða og hagkvæma lögfræðisþjónustu sem tryggir hagsmuni okkar viðskiptavina í hvívetna.
VÍÐTÆK ÞEKKING
Hjá Jónatansson & Co er breið þekking á lagaumhverfi atvinnurekstrar s.s. á sviði banka- og fjármálaréttar, samkeppnisréttar, skaðabótaréttar, vinnuréttar og fasteigna-og skipulagsmála.
Jónatansson & Co Lögfræðistofa
Jónatansson & Co lögfræðistofa er óháð og veitir alhliða lögfræðiþjónustu til fyrirtækja, stofnana og einstaklinga. Undanfarin 30 ár hefur stofan sinnt lögfræðiráðgjöf er snýr að öllum þáttum atvinnulífsins og jafnframt þeim álitaefnum sem snerta hagsmuni einstaklinga. Á lögfræðistofunni starfar samhentur hópur lögmanna með ólíkan bakgrunn sem gerir stofunni kleift að takast á við fjölbreytileg viðfangsefni viðskiptavina sinna þar sem áhersla er lögð á faglega lögfræðiþjónustu, heiðarleg og vönduð vinnubrögð, trúnað og góð samskipti.
Tjónabætur - ef þú lendir í slysi
TJÓNABÆTUR er deild innan Jónatansson & Co. Lögmenn okkar búa yfir áratuga reynslu af rekstri slysa-og skaðabótamála og hefur stofan rekið fjölda slíkra mála fyrir innlendum dómstólum og úrskurðarnefndum auk þess að reka stór skaðabótamál erlendis.
Við erum vel í stakk búin til að aðstoða fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga í hvers kyns tjónamálum.
Fréttir
Það er með stolti sem að Jónatansson & Co lögfræðistofa tekur sjöunda árið í röð við viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki. Nafnbótin hlýst fyrir að uppfylla ströng skilyrði Creditinfo. Einungis 2% fyrirtækja á Íslandi fullnægðu skilyrðunum í ár. Vottunin er merki um að Jónatansson & Co lögfræðistofa byggi rekstur sinn á sterkum stoðum. Það er því eftirsóknarvert að komast á lista Framúrskarandi fyrirtækja og njóta þannig aukins trausts í viðskiptalífinu.
Það er með stolti sem að Jónatansson & Co lögfræðistofa tekur sjötta árið í röð við viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki 2019. Nafnbótin hlýst fyrir að uppfylla ströng skilyrði Creditinfo. Einungis 2% fyrirtækja á Íslandi fullnægðu skilyrðunum í ár. Vottunin er merki um að Jónatansson & Co lögfræðistofa byggi rekstur sinn á sterkum stoðum. Það er því eftirsóknarvert að komast á lista Framúrskarandi fyrirtækja og njóta þannig aukins trausts í viðskiptalífinu.
Arnar Vilhjálmur Arnarsson fulltrúi hjá Jónatansson & Co. hefur lokið við námskeið til öflunar málflutningsréttinda fyrir héraðsdómstólum og öðlast starfsheitið lögmaður frá og með 6. desember 2018. Arnar var einn af fimmtán lögfræðingum sem nýskráðir voru á námskeiðinu í haust og einn aðeins af fjórum til að ljúka því. Arnar starfar við ýmis mál hjá stofunni, einkum skaðabótamál og hefur hann áður sinnt bæði aðstoðarkennslu hjá Háskóla Íslands og kennslu prófundirbúningsnámskeiðs á sviði bótaréttar. Þá veitti hann Eiríki Jónssyni, forseta lagadeildar Háskóla Íslands, aðstoð við rannsóknarvinnu vegna fræðiritsins Bótarétt III sem er væntanlegt. Verandi rétt rúmlega 25 ára við útskrift var hann yngstur af þeim sem útskrifuðust og er því í dag einn yngsti starfandi lögmaður landsins.
Fimmta árið í röð stenst Jónatansson & Co lögfræðistofa skilyrði Creditinfo til að hljóta nafnbótina Framúrskarandi fyrirtæki. Einungis 2% fyrirtækja á Íslandi fullnægðu skilyrðunum í ár. Vottunin er merki um að Jónatansson & Co lögfræðistofa byggi rekstur sinn á sterkum stoðum. Það er því eftirsóknarvert að komast á lista Framúrskarandi fyrirtækja og njóta þannig aukins trausts. Jónatansson & Co er stolt af því að ná þessum árangri.
Arndís Kristjánsdóttir hefur hafið störf sem héraðsdómslögmaður hjá Jónatansson & Co lögfræðistofu. Arndís hefur fjölþættan starfsferil að baki. Áður en Arndís hóf störf hjá Jónatansson & Co. starfaði hún í sjö ár sem lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlitinu. Þar á undan starfað hún m.a. sem fulltrúi hjá Fasteignamál lögmannstofu, aðstoðamaður Eyvindar G. Gunnarssonar núverandi prófessors við lagadeild HÍ, aðstoðamaður lögfræðinga hjá Lagastoð, framkvæmdastjóri Íslensku vefstofunnar, verkefnastjóri hjá Teymi, Oracle á Íslandi og sem vefstjóri hjá mbl.is.
Arndís hefur sinnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum. Hún situr nú m.a. í háskólaráði Háskóla Reykjavíkur sem fulltrúi mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
Jónatansson & Co lögfræðistofa er meðal sterkustu fyrirtækja í landinu samkvæmt greiningu Creditinfo sem er nú unnin í níunda sinn en Framúrskarandi fyrirtæki 2018 eru um 2% íslenskra fyrirtækja. Framúrskarandi fyrirtæki þykja byggja restur sinn á sterkum stoðum og þykja stuðla að bættu viðskiptaumhverfi. Jonatansson & Co eru stolt af því að ná þessum árangri.